Anna Vala skvísa var hjá mér núna í nokkra daga hérna í Vín og við vorum alveg ótrúlega skemmtilega menningarlegar og villtar í bland (: Við fórum á Spaðadrottninguna hans Tchaikovskys (ég náði þessum algengustu rússnesku óperuorðum: krassaviza (falleg stúlka), liúbliú (elska) og svo auðvitað tri karti (þrú spil) sem var endurtekið svona 100 sinnum (: ) Mjög fín ópera bara, verst að við vorum svoldið þreyttar í fótunum og vorum í standstæðum. Svo fórum við aðeins í Belvedere garðana að skoða. Lentum reyndar í alveg brálæðis veðri á leiðinni þangað, alltí einu fóru að falla risahögl (meðalstærð svona 3 cm í þvermál) þannig að ég vippaði Önnu Völu í snarræði mínu inn um fyrstu opnu dyragættina sem bauðst..... sem var guðs hús (: Sem betur fer var þar bara enginn og við eyddum þarna góðum 40 mínútum í að skrifa póstkort, taka örvæntingarmyndir af okkur og syngja íslensk lög í röddum þar til stytt var upp. Afskaplega gaman. Svo hlotnuðust okkur miðar á tónleika með Ceciliu Bartoli - það var EKKI leiðinlegt (var verulega hugsað til Steinrúnar). Hún er alveg algjör. Hún á skol ekki í vandræðum með coloraturur og þegar maður heldur að hún komist ekki hraðar þá skýtur hún manni illilega ref fyrir rass. Svo lágum við einn daginn í leti og sóluðum okkur við Alte Doná með vinum mínum, fórum svo reyndar aftur nokkrum kvöldum síðar í þrumuveðri og syntum þar lengi í rigningunni - ótrúlega gaman!!!! Svo borðuðum við auðvitað afskaplega vel og Anna Vala bauð mér og Jónasi (mínum fyrrverandi) út að borða á Indverskum matsölustað í tilefni að afmælinu mínu. Mjög, mjög ljúffengt. Með fylgja myndir frá síðustu dögum, vona að einhver hafi gaman af (:
Sunday, June 29, 2008
Anna Vala í heimsókn

Friday, June 20, 2008
Gengið og hjólað
Jæja, nú sýndum við nútímaóperuna sem ég var að taka þátt í þann 12. júní. Gekk bara alveg dandala ágætlega og fólk var ánægt með okkur - sem er alltaf gaman (:
Eftir að vera laus undan því stressi öllu saman gat ég aftur farið að lifa svona smá og fór í fjallgöngu með vinkonu minni og hennar vinum á Snjófjall, sem er hæsta fjallið í Nieder Österreich (2057 m minnir mig). Það var bara svaka ferð. Lögðum af stað frá Vín um 7 á sunnudagsmorgni, hófum göngu um hálf 9 og vorum ekki komin aftur í bílinn fyrr en rúmlega 19. Bíllinn stóð í 600 m hæð þannig að við hækkuðum okkur um rúmlega 1400 m. Rosa dugleg og vááaááááá´! hvað það er fallegt í Austurríki, útsýnið var frábært og svo heyrði maður stundum óminn af beljuklukkunum. Rosa rómó. Ég hélt náttúrulega að ég yrði farlama af harðsperum en það kom mér skemmtilega á óvart að þær voru ekki svo slæmar. Hundurinn sem var með í för var hins vegar alveg frá í tvo daga (;
Í gær var ég svo líka geðveikt menningarleg og tók þátt í Critical Mass. Það er semsagt fullt af fólki sem hittist 3. föstudag hvers mánaðar og hjólar í hóp um Vín til að berjast fyrir betri hjólasamgöngum og að fólk noti hjól frekar en bíla. En, 3. föstudaginn í júní er sú undantekning gerð, að margir hjóla naktir eða fatafáir eða í furðulegum búningum. Þetta var alveg óskaplega fyndið og ég skemmti mér alveg konunglega. Ég var hógvær og var á bikinítopp og stuttbuxum en fullt af fólki var á afmælisklæðunum. Mér fannst samt flottastur maðurinn sem var ber í svörtum sokkum, lakkskóm, mörgæsarjakka og með pípuhatt. Annar hafði málað á bakið á sér hlykkjóttann veg sem lá alveg niður í rassaboru og ör sem sýndi að bílar ættu að fara þangað. Það var semsagt mikið hlegið þennan dag (:
Annars er ég alveg að deyja úr spenningi yfir að vera alveg að koma heim, bara rúm vika!!!!
Monday, May 5, 2008
Einskær fegurð
Haha!!! Sumir hafa eflaust verið byrjaðir að halda að ég hefði verið að gantast þegar ég montaði mig af löngum nöglum og fögru naglalakki! Nú er ég búin að safna aftur og setja upp rauða litinn... Svo skemmtilega vildi samt til að þar sem ég sat við eldhúsborðið og var að ljúka við verkið missi ég bölvað lakkið niður á nýju gallabuxurnar mínar. Já, lengi minnist ég þeirra fleygu orða sem stóra systir mælti þegar ég var lítil, og vildi ekki láta mála mig í framan - "Beauty is pain". Mikið rétt....og hún er dýr líka...
Jæja, hin myndin er af fallegasta tré sem ég veit um þessa dagana og stendur fyrir framan skólann.
Sunday, April 27, 2008
Sumar í nánd
Jæja nú er ég aðeins byrjuð að iða í skinninu eftir að komast heim. Byrjuð að dreyma heim á hverri nóttu og finna í líkamanum að ég á að vera þar... EN 2 mánuðir og svo er það heim. Get varla beðið (; En sem betur fer byrja æfingar á óperu í næstu viku sem sýnd verður í júní. Hún er mjög stutt þessi og bara fyrir mezzó og barritón, frá 1992, eftir Gottfried von Einem og heitir Prinzessin Traurichkeit (Prinsessa depurð/dapurleiki). Mjög fyndin lítil ópera og textinn er algjör snilld.
Annars er vikan búin að vera alveg ömurleg þar sem ég er búin að vera veik heima alla vikuna bara með hita og læti. Nú er þetta samt allt að koma og bara astminn vinur minn eftir. Þess vegna fór ég í danstímann í gær og það var geðveikt fjör. Vorum að æfa Ungverskan (sem mynnir mjög á
spænskan dans) og Polka og valsa. Rosa gaman! Nema hvað, að á leiðinni heim stytti ég mér leið í gegnum lítinn garð hérna rétt hjá húsinu mínu og varð fyrir hálfgerðri dúfnaárás. Ég hlýt að hafa litið út eins og einhver sem gefur þeim reglulega eða eitthvað því allt í einu vara bara skýfall af dúfum. Þær veltust alveg hver um aðra fyrir fótunum á mér og flögruðu allt í kringum mig og tvær settust meira að segja á hausinn á mér. Þetta var óskaplega gaman en ég átti bara því miður ekkert handa vesalingunum, en þær ætluðu samt ekkert að láta það neitt á sig fá og eltu mig í gegnum allan garðinn. Ég þurfti að mjaka mér áfram til að koma fæti niður án þess að stífa á dúfukríli.
Síðasta helgi var alveg æðisleg. Einar mágur var hér á ráðstefnu vikuna þar á undan og svo kom Agnes á föstudagsdkvöldinu
og svið sprelluðum öll saman. Fórum t.d. í stóra tívolísvæðið hérna í Vín og út að borða og svona gaman. Hér eru með myndir af okkur að prófa tækin (:
Sunday, April 6, 2008
Sjálfsskoðun...
Þið kannist sjálfsagt flest við þær stundir þegar maður spáir alvarlega í það hvort maður sé ekki örugglega alveg heill á geði. Áðan átti ég svona skemmtilegt moment þegar ég sat í sporvagninum. Ég hafði ekki tekið neitt með mér til að læra á leiðinni þannig að ég ákvað að fara yfir senu sem ég var að æfa í síðustu viku - svona syngja í huganum og sjá fyrir mér hreyfingarnar. Ég var alveg pottþétt með opin augun en ég var svo óskaplega týnd í mínum hugarheimi að mér brá þegar, ég veit ekki hve mörgum mínútum seinna, ég tók eftir því að ég væri í
sporvagni og var alveg nokkur sekbrot að átta mig á hvar ég væri eiginlega.
Svona er maður undarlegur og heilinn alltaf eitthvað að leika á mann, sérstaklega merkilegt að maður geti séð eitthvað í huganum svo skýrt að maður sér ekki lengur út um augun.... umm... hljómar svoldið óhuggulega.
Jæja, annars er skólinn byrjaður aftur eftir yndislegt páskafrí með Agnesi, Einari, Guðjóni Braga, Hörpu og Úlfi í Hamborg (og með Nóa páskaeggjum frá mömms, pabbs og píps) og svo komu Lions-systkini mín (Bert-belgi og Jana-tékki) í nokkra daga síðustu helgi. Mikið fjör og gaman með öllum. Í hamborg horfðum við á alla Næturvaktina og frasarnir eru alveg ótrúlega sterkt stimplaðir fremst í heilann á mér (Já, fínt, já sææææll). Annars er Bert er með eitthvað "thing" fyrir hótelum þannig að á sunnudagsmorguninn bauð hann mér í brönch á Hilton hótelinu niðri miðbæ. Já, nei, ekki að grínast. Ég veit ekki hví en mér leið eins og útsnýttu tissue þegar ég kom þarna inn - passaði sko ekki inn í þetta fínerí. En maturinn var að sjálfsögðu aaaaaafskaplega góður. Alveg nokkur risa hlaðborð og djassundirleikur og þjónar að snúast í kringum mann. Óþarfi að taka það fram að ég borðaði mér til óbóta. Eftir 3ggja tíma át ultum við svo yfir í næsta almenningsgarð og lágum á meltunni (; Ég ætla aldrei aftur að gera sjálfri mér það að borða svona mikið!
Myndir af rauðum nöglum koma inn á næstunni. Ég var svo gáfuleg að gleyma myndavélinni minni (hemm... og símanum og buxunum mínum) í Hamborg þannig að Einar kemur með hana næstu helgi og í framhaldinu get ég svo afmyndast á alla kanta.

Saturday, March 15, 2008
Voooooooooooor
Ok, ég held að ég geti verið búin að uppgötva uppáhalds árstímann minn í Vín. Það er ekki of heitt ennþá, svona þægilegar 10 gr eða svo, og allt er að springa svo yndislega út. Tré með hvítum, bleikum og gulum blómum, að ég tali nú ekki um páskaliljur, krókusa, túlípana og allt það. Rosa gaman að vera úti... ef maður bara hefði tíma.... Manni tekst alltaf einhvern veginn að koma sér í einhvern helling af verkefnum og skemmtilegheitum. Merkilegt líka hvað það tekur óhugglega langan
að læra atonal nútímaverk, og því miður er þolinmæði ekki alveg mín sterkasta hlið... Jæja, á mánudasgmorguninn verður haldið í páskafrí til Agnesar og Einars í Hamborg þar sem íslensk páksaegg bíða (: Namm, namm! Takk mamma og pabbi!
Annað, mæli með að þið ykkar sem ekki eruð búin að sjá Sweeney Todd í bíó geri það. Mjög hressandi og skemmtilegt. Líka gaman að sjá hvað myndin er lík uppsetningu Íslensku Óperunnar. Söngurinn bara svoldið annar en mér finnst bæði koma rosa vel út.
Já! og aðrar rosa merkilegar fréttir! BINGÓ sem Leikfélag Kópavogs og Hugleikur settu upp í sameiningu síðasta vor var valið til að fara á Leiklistarhátíð í Riga í Lettlandi 1.-5. ágúst. Það verður frábært að fá að sýna þetta aftur þar sem leikhúsið okkar var rifið eftir nokkrar sýningar þarna um vorið. En þetta verður semsé alveg frábært og mikið skemmtilegt.
Aðrar "merkilegar" fréttir: Hahahh! Ég er allt í einu komin með svo langar neglur að ég ætla að fjárfesta í rauðu naglalakki (;
Monday, March 3, 2008
Hvítir hrafnar...
.... eru jú, vissulega sjaldséðir, en greinilega ekki alveg ósjáanlegir (:
http://www.faroenature.net/gallery/displayimage.php?pos=-4477
Sýnist á öllu að þetta sé færeysk síða.
http://www.faroenature.net/gallery/displayimage.php?pos=-4477
Sýnist á öllu að þetta sé færeysk síða.
Subscribe to:
Posts (Atom)
.jpg)