Sunday, June 7, 2009

Smá hiatus


Hiatus er skemmtilegt orð sem ég lærði ekki fyrr en í jarðfræðináminu...
Allavegana. Ég er búin að færa mig það mikið yfir í facebook heiminn til að hafa samband við kunningja og vini og fjölskyldu að bloggið hefur bara nærri dáið hjá mér. Ég hef bara hreinlega ekki oft frá einhverju merkilegu að segja, eins og ég held ég hafi nefnt eftir síðasta blogghiatusinn minn, og ræði flest hugðarefni mín í stað þess að rita þau. Nújæja...
En nú hef ég semsagt frá einhverju að segja SKO!
Í gærkvöldið vorum ég og tveir aðrir strákar að syngja í höll! Schloss Ebenthal. Annar strákanna þekkir hallareigandann sem var að halda uppá 60. afmæli sitt og konan hans bað strákinn að setja saman smá tónleika til að hafa milli aðal- og eftirréttar.
Þvílíkt og annað eins! Þessi gaur er augnlæknir og hann og konan hans keypu höllina fyrir 20 árum síðan og hafa síðan verið að ditta að henni. Höllin var byggð um 1800 og er öll svona síðbarokk. Hún er svona ferhyrningur og þau eru nú búin að gera upp 3 hliðar hennar að mestu, svo er garður í miðjunni með rósum! Og mér skildist líka að nokkuð land fylgi höllinni en ég náði því miður ekki að skoða úti því það rigndi eins og hellt væri úr fötu. En ég skoðaði sko húsið meðan ræðuhöld og svoleiðis voru í gangi og þetta var alveg rosalega fallegt; veggteppi og freskur og svona upphleypt krúsidúll í loftinu og útum allt sem ég man ekki hvað heitir, líka æðislegar mublur og munstrin í parketinu voru fáránlega flott. Þegar ræðuhöldin kláruðust var komið að hlaðborðinu. Á hverju borði var listi yfir hvað væri boðið uppá á hlaðborðinu og réttirnir voru allir eldaðir af húsmóðurinni sem er algjör kvenskörungur og frábær kona. Ég nenni ekki að skrifa inn alla réttina en ég ákvað að telja þá til að gefa einhverja hugmynd (:
Forréttir: 18
Aðalréttir: 22
Eftirréttir: 24
Það gekk alveg ágætlega að syngja, hefði nú alveg mátt ganga betur að mínu mati en fólk virtist ánægt. Strákurinn sem þekkir hallareigandann átti nú samt kvöldið þar sem hann söng vínerískar klám- og drykkjuvísur með miklu offorsi og leikrænum tilþrifum. Hann var alveg yndislegur, stór og mikill strákur/maður en dillar sér alveg eins mesta krúsíbolla.
Þjónarnir voru aðkeyptir og ég hef bara aldrei vitað aðra eins fagmennsku og yndislegheit. Ég féll náttúrulega alveg fyrir sæta brúneyga þjóninum okkar sem snerist alveg í kringum okkur og laumaði mér svo inní eldhús eftir konsertinn til að ná mér í smá aðlarétt (þar sem ég gat ekki borðað hann fyrir sönginn því annars hefði ég ekki komið upp tóni). Allskonar hlutir sem ég vissi ekki sem ég lærði hjá þessum yfirmáta herramanni:
Daman labbar alltaf aðeins á undan herramanninum, nema niður stiga. Þá er karlinn á undan til að geta gripið dömuna ef hún dettur, fellur í yfirlið eða eitthvað. Svo ýtti hann alltaf stólnum að borðinu þegar maður var að setjast. Það hefur aldrei verið komið fram við mig áður eins og dömu. Þetta var alveg ótrúlega skemmtilegt!!!

Tuesday, February 24, 2009

Hmmmm...

Í síðasta fluginu mínu á 25 tíma ferðalaginu frá Houston (yes...we have a problem (: ) til Vínar var ég orðin annsi annsi subbuleg; nett sveitt, með fitugt hár, bauga og með poka og allt einhvernveginn í kringum mig í rugli. Allavegana, þegar ég fór uppí síðustu vélina sem átti að flytja mig frá Kaupmannahöfn til Vínar hlammaði ég mér bara beint niður í sætið mitt (1A) með poka og flíkur í fanginu. Þegar enginn settist í sætið við hliðina á mér gerðist mín ánægð með lífið og henti dótinu þangað, náði í bókina sem keypt var á flugvellinum í Köben (44 Scotland Street e. Mcall Smith - mjög góð) og sökti mér í lestur og lakkrísát. Ég var nýbúin að koma mér betur fyrir - með báða fætur uppí sætið sem er erfitt að gera á mjög siðsamlegan hátt í pilsi, en ég reyndi - þegar flugfreyjan kom með kvöldmatinn. Hmmm... þetta var ekki eins og svona venjulegur flugvélabakki á að líta út, ekkert var í dollum. Flugfreyjan hafði líka verið eitthvað óvenju iðin við að spurja hvort mig vanhagaði um eitthvað og hvort ekki mætti bjóða mér drykki. Allavegana þá fór ég nú að líta í kringum mig og fattaði, með nokkurri skelfinu, að ég væri á fyrsta farrími. Hvernig það gerðist er ég ekki alveg viss. Annars minnir mig að mamma eða pabbi hafi minnst á, á einhverjum tímapunkti, að það hefði verið það eina sem var laust þegar miðar voru pantaðir. Alltént þá brá mér alveg nokkuð. Og ég fjarlægði sokkana úr sætinu og byrjaði að reyna að vera dönnuð. Ég stalst meira að segja til að gjóa augunum til mannsins hinu megin við ganginn (miðaldra í jakkafötum með dagblað) til að sjá hvernig hann færi að með kvöldmatarbakkann. Þegar ég var búin að vera að reyna að láta eins og heldri manneskja í smá stund þá rann upp fyrir mér hvað ég væri í raun mikill bjáni. Þó ég sé á fyrsta farrími þarf ég ekki að haga mér öðruvísi en ég myndi gera á almennu farrími. Eða hvað....? ....eða hvað....? Ætlast hitt fólkið sem kaupir miða á fyrsta farrími til að hitt fólkið þar sé dannað? Hmmmm... Jæja, þetta hefði nú allt verið mun skárra ef mér hefði ekki liðið eins og einhverjum sem er búinn að vera í sveittu ferðalagi í rúma 20 tíma, ekki búin að sofa mikið, búin að borða kannski aðeins og mikinn lakkrís og er í fötum sem eru búin að vera ofaní tösku eða í notkun síðastliðnar tvær vikur, fyrir ferðalagið.
Mér fannst þetta allavegana fyndin lífsreynsla - að standa sjálfa mig að því svona alveg beint að reyna að vera eins og "hinir" - að falla í hópinn. Hefðuð þið gert það sama?

Monday, February 23, 2009

Texasferðin

Jæja! Þá er Texasferðinni lokið. Í um tvær vikur rúntaði fjölskyldan um Texas og skoðaði og hitti ættingja. Ferðin var nokkurn vegin eins og best var á kosið, enda náðum við að hitta öll systikyni pabba, krakkana þeirra auk maka og kærasta þeirra, sem er ekki lítið þegar allt er tekið saman.
Ævintýrið byrjaði í New York þar sem ég hitti m&p og AV&EÓ. Þar voru miklir, ef ekki nokkuð syfjaðir, fagnaðarfundir áður en haldið var með ofurhressum leigubílsstjóra á Days Inn hótelið okkar. Við höfðum 2 daga í New York og nýttum þá í gönguferðir í Central Park, skoðuðum The Metropolitan Museum of Art (sem er ROSA stórt og æði), fórum á frábæra Djasstónleika, trítluðum upp og niður Broadway, skoðuðum The Metropolitan Opera og fengum okkur í svanginn hér og þar, t.d. í China Town. Mjög yndælt allt saman. Af einhverjum ástæðum var mér úthlutað (af fjölskyldunni) stærsta herberginu á hótelinu þannig að það varð partípleisið... eða þannig (:
Svo var ferðinni haldið áfram til Texas. Flugin í þessari ferð voru náttúrulega nokkuð geðsjúk. Ótrúlegt hvað maður þarf oft að skipta um vélar. Allavegana komumst við frá NY til Lubbock með þremur flugum (NY-Charlotte-Dallas-Lubbock). Við lentum um 14 og Granny og Granddaddy auk bróður pabba sóttu okkur á flugvöllinn. Með þeim rúntuðum við svo til Lamesa, stoppuðum í Prarydog Town, og fylgdumst aðeins með litlu krúsubollunum, og á leikvelli þar nálægt þar sem við gátum aðeins notað uppsafnaða þörf fyrir að láta eins og bjánar (: Svo var kvöldmatur með öllum sem voru á staðnum hjá öðrum bróður pabba. Algjör veisla (eins og reyndar var raunin um hverja einustu máltíð sem okkur hlotnaðist á þessari ferð - hvort sem hún var kvöldmatur eða morgunmatur). Fyrstu dagana gistum við hjá bróður pabba sem býr á sveitabæ rétt utan við bæinn og ræktar lífræna bómull. Síðan ég var lítil hefur þessi bær heillað mig. Þau eiga alltaf urmul af dýrum sem ganga laus úti. Að þessu sinni voru það 3 pilsuhundar og 2 kisur sem eru öll fáránlega kelin, auk hænsna. Svo eiga þau risa trampolin (sem er reyndar farið að segja svoldið til ára sinna og tveir gormar þeyttust burt þegar Einar var að prófa það), fjórhjól og hinn ótrúlegasta kjallara sem til er! Hann hafði heldur ekkert breyst frá því ég var þar síðast fannst mér. Í fyrsta lagi þá er hann RISA stór. Í honum er sófahorn þar sem maður getur horft á sjónvarpið eða spilað tölvuleiki. Svo er skífa fyrir pílukast, lofthokkíborð, borðtennisborð og alls kyns fleira ótrúlega áhugavert.
Allavegana liðu dagarnir í Lamesa með texmex mat, bæjarskoðunum, heimsókn í bómullarvinnslustöð og kirkjugarðinn þar sem nokkrir Voglerar kvíla (eitt par er ennþá lifandi en búið að kaupa sér reit OG stein OG búið að skrifa allt á hann nema dánardagana! Áhugavert.). Einn daginn fórum við öll saman út að skjóta. Það var þvílíkt fjör. Á boðstólum voru mismundandi gerðir af riflum og tvær skammbyssur. Margir þarna úti eru mikið fyrir veiðar. Við stilltum upp dósum og steinum og það var nú alveg merkilegt hvað allir gátu hitt eitthvað, auðvitað var fólk misgott, enda sumir með meiri æfingu en aðrir en þetta var rosa gaman! Annað skipti keyrðum við í þjóðgarð sem heitir Caprock Canyon og gengum þar um. Geðsjúkt flott! Margir metrar af lagskiptu rauðu seti frá Perm - það voru meira að segja steingerfingar!!! En út af því að þetta er þjóðgarður tók ég ekkert með mér - já ég er ótrúlega stolt af mér! Tók bara myndir og skildi ekkert eftir nema fótspor (:
Jæja, svo kvöddum við alla nema bróður pabba og konuna hans sem héldu með okkur á vit ævintýranna niður til Fredricksburg þar sem þau eiga nokkuð land. Það er allt öðruvísi en umhverfið við Lamesa. Þar er allt flatt og þurt og einhvernveginn endalaust eins - svo langt sem augað eygir, nærri Fredricksburg eru hins vegar hæðir og hólar og tré og kaktusar og vatn (: Mjög fallegt þar. Þaðan fórum við til Austen (höfuðborg Texas) eina kvöldstund. Frá Friðriksbæ héldum við svo áfram til Crocket og þaðan til Houston þar sem við fórum aftur í flug. Ég fór alla leið til Vínar í einum rikk, sem þýddi 5 flug, eða ca. 14 klst í flugvélum. Rosa tími sem fer í þetta!
Umhugsundarefni:
Eftir þessa ferð finnst mér ekki skrýtið að margir Bandaríkjamenn eigi við offituvandamál að stríða. Skammtastærðir eru alveg ótrúlegar! Fjölskylda pabba er samt öll mjög nett bara... veit ekki hvernig þau fara að þessu - sennilega fara þau ekki oft út að borða....
Því miður ætla ég að enda á dapurlegum nótum. Þegar við vorum í Metropolitan safninu útskýrði Agnes fyrir mér eitt listaverkið. Það var skýrskotun í ljóð eftir Lewis Allen sem Billie Holiday gerði frægt - Strange Fruit. Það er ótrúlegt hvað mannkynið hefur gert margt ógeðslegt í gegnum tíðina og mér finnst alltaf jafn sárt að komast að því hvað fólk hefur í sér. Þetta ljóð fjallar um svertingja sem hengdir voru í Bandaríkjunum, oftast án ástæðu. Aðrir svertingjar voru látnir horfa á.

STRANGE FRUIT

Southern trees bear strange fruit,
Blood on the leaves and blood at the root,
Black bodies swinging in the southern breeze,
Strange fruit hanging from the poplar trees.

Pastoral scene of the gallant south,
The bulging eyes and the twisted mouth,
Scent of magnolias, sweet and fresh,
Then the sudden smell of burning flesh.

Here is fruit for the crows to pluck,
For the rain to gather, for the wind to suck,
For the sun to rot, for the trees to drop,
Here is a strange and bitter crop.

Friday, February 6, 2009

Flogið í draumi vængjalaus

Jæja þá er búið að pakka í handfarangurinn og vona að ég sé ekki að gleyma einhverju hræðilega mikilvægu sem ég átti að gera áður en ég færi... örugglega...
Allavegana er þetta óvenjulegt ferðalag að því leiti að ég er ekki með bók með mér til að lesa. Hins vegar ætla ég að gerast svo djörf að reyna að hafa með mér heklunál í handfarangri. Já ég er villt og lifi á brúninni. Maður verður víst að taka einhverjar áhættur í lífinu. Hins vegar ætla ég ekki að ganga alveg fram af brúninni með því að taka skæri með. Ég verð víst bara að bíta garnið í sundur. Planið er semsagt í fluginu frá Amsterdam til New York að hekla og horfa á hvað sem flugið býður uppá í imbakassanum (:
Hlakka til og bið að heilsa í bili. Hafið það rosa gott! :D

Sunday, February 1, 2009

Fuglar

Þó að ég sé nú reyndar svo mikið meira fyrir villta náttúru en reglustikuklipptar flatir og útreiknuð blómabeð þá hefur garður Schönbrunn hallarinnar vissan sjarma sem seint verður af honum tekinn. T.d. er sama hversu margt fólk er þar á skokki og vappi, það er alltaf hægt að finna stíg sem enginn annar er á og fá frið. Annað sem mér finnst sérlega skemmtilegt við garðinn er að þar eru gæfir litlir fuglar og íkornar (:
Þangað fór ég semsagt í gær, vel nestuð sólblómakjörnum og fóðraði bíbí. Það er einhver unaðslega einföld gleði í því. Ég náði að laða til mín blámýslur, kolamýslur (held ég að þær heiti) og einn kleiber sem eru ótrúlega fyndnir fuglar. Hann var algerlega uppáhaldið mitt í gær. Hann kom aftur og aftur og flaug með nefið fullt af kornum upp í trén umhverfis og faldi kornin í glufum í berkinum á trjánum. Algjör krús.
Annars er febrúarfríið byrjað núna í skólanum. Æfingar á Haydn óperunni sem sett verður upp við skólann í lok apríl verða samt nokkrar núna næstu daga og það er svo sem nóg að læra áður en ég flýg til Bandaríkjanna á föstudaginn og hitti þar m&p og A&E. Jei!

Friday, January 30, 2009

Tvær ömmuvísur í viðbót

Tvær vísur í viðbót komu frá Ernu frænku í dag, hvort langamma samdi eða ekki, er ekki vitað en þetta eru yndæl heilræði (:

Ýmsir vilja yfir þér drottna
og aftra þér máls.
Öðrum til bjargar átt þú að vera
andlega frjáls.


Takt'ekki niðrið of nærri þér,
það næsta gömul er saga
að lakasti gróðurinn ekki það er
sem ormarnir helst vilja naga.

Thursday, January 29, 2009

Langamma Helga

Erna frænka sendi þessa vísu á fjölskylduna. Hún fann hana innan um gamalt dót en langamma Helga hafði gefið henni vísuna á fermingardaginn. Mér finnst hún svo óskaplega falleg að ég ætla að stelast til að varpa henni hérna fram.

Þjer um aldur unga fljóð
ekkert valdi pínu.
Yfir þig tjaldi gæfan góð
gullnum faldi sínum.

(:

Thursday, January 15, 2009

Sláðu þau dauð!

Einn strákur sem er í leikstjóranámi við skólann er líka mikill áhugamaður um brúðuleikhús. Síðastliðinn þriðjudag fór ég á verk sem hann samdi og gerði brúðurnar fyrir - Schlag sie tod, eða Sláðu þau dauð. Þetta var alveg fáránlega fyndið! Brúðurnar eru í líkamsstærð og fólkið sem talar fyrir þær og hreyfir þær er oft líka að leika á sviðinu. Plottið er semsagt sagan af því þegar herra Bernie er sendur á elliheimilið "Altíð grænt". Í fyrsta lagi hatar hann grænt og þar fyrir utan er hann ótrúlega bitur bara í alla staði og þolir ekki hitt fólkið á elliheimilinu: konuna sem getur ekki hreyft sig fyrir offitu, herra Demens sem er gamall ríkur íssali og frú Iliu sem er visnuð óperusöngkona (: svo vindur plottið þannig upp á sig að Bernie, sem verður vitni að því þegar yfirlæknirinn drepur herra Demens aura hans vegna (til að þóknast sætu hjúkkunni), nær óperudýfunni á sitt band og þau drepa í sameiningu lækninn og grimmu hjúkrunarkonuna. Óperudýfan auðvitað með því að endurlifa atriðið úr Toscu e. Puccini (sem hún söng einmitt í Bayruth 1933) þar sem Tosca stingur hinn ógeðslega Scarpia með hníf. Ótrúlega smekklegt og fyndið. Asnalegt hvað er langt síðan maður hefur farið í brúðuleikhús, eins og það var nú góður brúðuleikhúshópur á Egilsstöðum þegar ég var lítil.
Þetta er alveg frábær skemmtun og alls ekki bara fyrir krakka - fleiri fullorðins brúðuleikhús, já takk ;)

Saturday, January 10, 2009

My fair Lady

Jáhá, í gærkvöldið gerði ég mér smá dagamun og fór í Volksoper. Ég hugsaði ekki einu sinni útí það þegar ég ákvað að gera eitthvað úr föstudagskvöldinu með Clair (sópran frá Frakklandi) og rak augun í My fair, að hún gæti verið á öðru en ensku... en ég meina, auðvitað, við settum náttúrulega verkið upp heima á íslensku, þannig að það er varla hægt að búast við öðru en að þýskumælandi áhorfendaskari vilji fá sína þýsku og engar refjar (er þetta orð?). Heima á Egils var Elise (Agnes systir!) auðvitað flámælt og linmælt og örugglega vel rík af öðrum hræðilegum málkvillum en hér... hér var auminginn haldin Vínerísku (:
(Víneríska er næstum óþekkjanleg þýska - þýska með dönskum hreim, ósköp slepjulegt, allir sérhljóðarnir eru afbakaðir (a verður o t.d.), flestir samhljóðarnir hverfa eitthvert (hafa sjálfsagt flúið) o.s.frv.
Ója, ég skildi varla eitt einasta orð sem stúlkan sagði. En verkið stendur vel fyrir sínu og tónlistin er æði pæði. Mr Doolittle skaraði reyndar framúr sem langbesti leikarinn. Mér fannst samt merkilegt í þessari uppfærslu að það er rómantík eigilega alveg frá byrjun milli þeirra skötuhjúa... og reyndar fannst mér Higgins stundum jaðra fullmikið við að vera hreinlega perralegur. Almennt finnst mér skemmtilegra að leifa áhorfendum að nota ímyndunaraflið og hafa opinn endi: eru þau bara vinir - er eitthvað meira á milli þeirra??? Allavegana hefði ég sko ekki óskað aumingja Elise að enda upp með þessum Higgins eins og raunin var og verkið endaði á heiftarlegau kossaflensi og keleríi.
Jæja - læra. Erla = löt og heimakær (:

Thursday, January 8, 2009

Örstutt pæling

Vissuð þið að það er til fólk sem, kvöldið fyrir frídag í miðri viku (einn af þessum elskulegu Kaþólsku frídögum), fer EKKI á pöbbinn til að drekka frá sér vit, heldur fer út að skokka... um MIÐNÆTTI! Mér stóð nú ekki á sama þegar ég mætti 4. skokkaranum þegar ég var að labba heim eftir flugið núna á mánudagskvöldið. Sumt fólk sko.... já, heilbrigt líferni er mjög gott og gilt, en öllu má nú ofgera (:
Annað - ég varð fyrir vonbrigðum í ferðinni minni. Við vitum öll að það eru til manneskjur sem eru misyndælar. Mér finnst bara rangt að þessar manneskjur líti út fyrir að vera það líka. Allavegana þá voru tvær konur sem fóru fram fyrir mig í tveim mismunandi röðum í Keflavík og Frankfurt og þær litu báðar út fyrir að vera svoleiðis konur, háværar gellur, með króníska skeifu og mikið málaðar. Það er bara eitthvað rangt við þetta. Ef leiðindalið lítur út fyrir að vera leiðindalið þá er einhvern veginn ekkert réttlæti í heiminum (já ok, það átti ég svosem að vita fyrir)... en verður það þá svona í útliti af að vera leiðinlegt.... eða er útlitið á móti þeim og framkoma annarra gagnvart þeim mótar þau og gerir úr þeim pakk.
Hahahha þetta átti nú ekki að vera svona ömurlegt þetta síðasta. En eftir nágranna mína á Baldursgötunni þá veit ég nú fyrir víst að það er fólk sem er bara virkilega rotið að innan og skemmt og vill ekkert annað en gera öðru fólki lífið leitt. Þetta er sorglegt en það besta sem maður getur gert er að reyna að halda sig utan við vandræði þessa fólks og sem fjærst því (í annarri heimsálfu er ágætis byrjun). Ef einhver getur hjálpað þeim til betri vegar þá er það æðislegt, en ég held að það þurfi professional manneskju í það.
Knús,
Erla (alla jafna mjög opin þegar er að kynnast fólki (: )

Tuesday, January 6, 2009

Árið 2008 - Uppgjör

Góðan daginn! Sæll og svo framvegis, langt er um liðið frá því ég bloggaði síðast og geri ég það nú með hjálp Sálarinnar hans Jóns mín sem systrahjartað fékk í jólagjöf frá elskulegum eiginmanni sínum.
...hvar er draumurinn!...
Ástæða bloggleti minnar liggur ekki í því að ég hafi ekki tíma til að blogga heldur hef ég endurtekið ætlað að blogga í vetur og alltaf komist að því þegar á hólminn er komið að ég hef bara ekkert skemmtilegt fram að færa og ég var farin að hallast að því að ég lifi ótrúlega óspennandi lífi (: En ég held að þetta snúst líka um að vera í rétta gírnum og detta bara ekki alveg út úr þessu því þá er alltaf svo mikið að segja þegar maður snýr aftur að maður hefur ekki einu sinni upphaf til að enda út frá...
...því gamalt verður nýtt í nýju ljósi...
En allavegana eru jólin yndislegu heima á Egilsstöðum núna liðin. Það var alveg frábært að koma heim. Lenti í Keflavík 19. des með hálffullri vél af útlendingum sem alveg skríktu af gleði þegar þeir sáu allan snjóinn. Ég skríkti vissulega líka innan í mér en ákvað að láta það ekkert fara lengra heldur bældi tilfinningar mínar eins og sannur Frónbúi. Snjórinn entist fram yfir jólatrjáartöku í Einarsstaðaskógi en svo var lítið sem ekkert um hann það sem eftir lifði hátíðanna. Annars liðu nú jólin bara svona eins og draumur. Heima var bakað, lítið sem ekkert þrifið af okkur systrum reyndar, skreytt, prónað og kelað við Pípsa. Við Þórunn Gréta settum saman smá prógramm af jólalögum til að flytja á elliheimilunum á Egilsst og Seyðis og enduðum svo á að spila það líka í Skötuveislu Kalla á Borgarfirði - rosa gaman. Ég og Karó kíktum í heimsókn til Dóru og Dóra á Eskifirði. Dóra var alveg fáránlega hress miðað við Agnesi greyið (sem er nú opinberlega tvö - hún og Agnarögn) og ef að hún hefði ekki verið komin með myndarlega kúlu hefði maður ekki tekið eftir að hún væri neitt "ófrísk" (bjánaorð svona yfirleitt). Við stelpurnar hittumst svo og spiluðum saman, það er alveg merkilegt hvað, þó allt breytist, allt sé mikið eins þegar við hittumst hver jól. Farið var á Annan í jólum ball, sem reyndist víst vera alveg brjálað - en það frétti ég ekki fyrr en eftir á. Ég og Karó dönsuðum og tjúttuðum eins og brjálæðingar og fólk sem maður hefur ekki séð í háa herrans tíð fékk koss á sig þegar það dansaði framhjá (:
...svo á morgun er allt liðið hjá....
Í gær flaug ég svo aftur til Vínar. Kvöldið áður var ég í alveg frábæru yfirlæti, fyrst hjá ömmu og afa, og svo í partíi hjá Helenu í Hafnarfirðinum með Þórunni Guðmunds, Önnu Völu og söngnemendum Þórunnar úr Hafnarf. Það var rosa gaman að hitta alla aftur þrátt fyrir að kreppan væri eitt af aðal umtölunarefnunum - enda Rakel útí Danmörku rétt að draga fram lífið í lítilfjörlegum vistarverum og búin að leggja mikið af.... enginn rósadans hjá nemendum um þessar mundir. Svo sá ég í tölvupósti áðan að frændi minn Björn Hákon varð pabbi þessa nótt, eignaðist fínasta dökkhærða son með henni Sigurborgu sinni.
.... og gamla skrímslið lifir...oóoóoó...
En já, bíðum nú við - þessi bloggfærsla átti að verða 2008 uppgjör með Sálarívafi. Ég hef nú svo sem ekkert merkilegt um árið 2008 að segja heldur bara heilmikið. Þetta var besta ár sem ég man eftir í lífi mínu til þessa. Skólinn hefur verið skemmtilegur og ég tel víst að mér hafi fram. Ég hef kynnst ennþá fleira frábæru fólki á þessu ári bæði hérna úti og heima. Sumarið var alveg sér gullmoli útaf fyrir sig - alveg brjálað en unaðslegt. Mamma og pabbi heimsóttu mig tvisvar út, Anna Vala kom, einnig belgíski bróðir minn og slóvenska systir mín, Björk, Agnes og Einar, Finnbogi og Raggi. Allir að kíkja á Vín sem er nú ósköp falleg. Kreppan hefur verið eitthvað svo framarlega í brennideplinum en ég verð bara að segja að þetta hefur verið besta árið mitt fram til þessa hvað sem henni líður. Ég er náttúrulega ekki eins illa stödd og margur annar og má teljast heldur betur heppin. Ef að ég hefði séð pípsann minn meira á þessu ári hefði árið að mínu mati verið fullkomið (:
Gerði ég áramótaheit - nei, í rauninni ekkert svona hátíðlegt en á árinu hafa nokkur orðatiltæki og svona hugsýnir komið inn í lífið og bætast nú við það hvernig ég tel gott að lifa því blessuðu. T.d. Gjörðu hið góða vegna hins góða, án tillits til þess, hvað af því leiðir.
Gleðilegt nýtt ár allir saman!